22. ágúst 2008
#
OLE OLE OLE OLE!!!!
Ég er varla að trúa þessu. Ísland er komið í úrslitaleikinn á móti Frökkum. Ég var alveg að tapa mér hérna ein heima að horfa á leikinn. Gólandi og gargandi. Eins gott að enginn sá mig
. Ég nagaði á mér allar neglurnar.... dem....
Þorði ekki að hafa nokkra trú á því að þeir myndu halda þetta út drengirnir.... hversu oft hefur maður nefnilega haldið að nú sé allt að gerast en svo gloprast það allt niður???
NEI... ekki í þetta sinn.... ef þeir spila svona á móti Frökkum á sunnudaginn þá koma þeir með gullið heim. FYRSTA ÓLYMPÍUGULLIÐ
ÁFRAM ÍSLAND!!!
18. ágúst 2008
#
Já, haldiði ekki að Reynir Sæberg sé komin með eina tönn og aðra sem er alveg rétt að láta sjá sig
framtennur í neðri góm. Sá verður nú ennþá sætari þegar hann brosir
Hann slær því stóra bróður aðeins við í því, vegna þess að Walter var orðin 3 mánaða og vikugamall þegar fyrsta tönninn fannst en Reynir Sæberg var 3 mánaða og 3 daga
. Þeir eru snemma í þessu bræðurnir en Sjana var orðin rúmlega 4 mánaða þegar hennar fyrstu tennur kíktu upp
Þetta eru nú meiri tannálfarnir sem við eigum
10. ágúst 2008
#
Já... sæll.... við erum á lífi!!!
Erum búin að vera á ferð og flugi um landið þvert og endilangt
Fyrri ferð var farin Vestur eins og sagði í síðasta bloggi. Seinni ferð var farin norður og á Snæfellsnes. Fengum alveg útlandablíðu í ferðinni, ekki amalegt það
Það var svo heitt að Reynir var bara á samfellunni einni saman í vagninum og líkaði það illa. Hann gat ekkert sofið í vagninum svona lítið klæddur. Ég meina hann er nú bara Íslendingur og vill vera dúðaður og með sína sæng
ekkert gaman að liggja bara hálf nakinn í vagninum og hólkast til og frá þegar verið er að keyra mann!!! Þannig að hann var blessunarlega sáttur þegar íslenska veðrið tók aftur við af sólarlandaveðrinu. Tókum land á Skagaströnd, Hrafnagili, Ólafsfirði, Stykkishólmi og enduðum á Grundarfirði. Vorum 12 daga í þessari reisu. Erum þá búin að vera samtals 27 nætur í húsbílnum í sumar. Þar af er Reynir Sæberg búin að vera 26 nætur af sinni 89 daga ævi í húsbílnum og líkar vel
. Hann virðist ætla að verða sama útilegukindin og við hin í fjölskyldunni.
Annars er allt fínt að frétta. Nú fer hversdagsleikinn að taka við aftur. Sjana er að byrja í leikskólanum á morgun eftir 1 1/2 mánaðar frí. Hún er farin að hlakka til enda að fara á nýja deild. Hún er orðin svo stór:) Svo fer skólinn að byrja aftur hjá okkur Walter líka. Reynir Sæberg er búin að fara í 3 mánaða skoðun og fá fyrstu sprautuna. Hann tók það alveg með trompi, fann ekki fyrir sprautunni og fékk engin óþægindi á eftir
duglegur strákur. Hann var orðin 7385 gr og 65,5 cm. Hjörtur á eftir að vera 1 viku heima og svo fer hann að vinna aftur. Þetta sumar er búið að vera alveg draumur og við notið þess að vera öll saman fjölskyldan.
Ég þarf svo að henda inn nýjum myndum við fyrsta tækifæri:)
Bið að heilsa í bili.....
14. júlí 2008
#
Við erum búin að vera í sumarfríi undanfarið. Smelltum okkur vestur á firði á ættarmót hjá Hjartar ætt. Það var haldið á Núpi. Svo fórum við yfir á Þingeyri og vorum þar á tjaldstæðinu í nokkrar nætur. Skelltum inn nokkrum myndum af fríinu. Smellið á myndina til að skoða:)
Bið að heilsa í bili...
Sæborg.
27. júní 2008
#
Var með þau systkyn Reyni Sæberg og Kristjönu Sigríði í 6 vikna og 3 og 1/2 árs skoðun í gær. Bæði eru þau súper flott, ekki að spyrja að því
Reynir Sæberg viktaði 6400 grömm slétt og búinn að þyngjast um heil 580 gr á 2 vikum
Verð að hætta að gefa honum svona mikinn ís.... hehehe!!! Hann var svo 61,8 cm á lengd. Hann er sem sagt bæði langur og þungur en er samt alveg að fylgja sinni kúrfu. Hann var jú feiki stór fæddur drengurinn. Ég segi því að hann sé náttúruleg lóð fyrir hendur og axlir. Hann sígur alveg þokkalega í. Fór með hann í bæinn í gær og skrönglaðist alveg með bílstólinn með honum í. Sem betur fer erum við samt með léttan bílstól
annars gæti ég ekki farið neitt með hann.... nema ég fari að taka á því í ræktinni
Þarf þess náttúrlega ekki... lyfti bara Reyni Sæberg nokkrum sinnum og verð alveg hel mössuð
Sjana mín Sigga er líka mjög stór eftir aldri. Hún var 18,6 kg og 106,5 cm á hæð. Barnalæknirinn var líka alveg rosalega ánægður með hana. Hann sagði við mig að ég væri með alveg 2 frábær eintök
Já... maður er ríkur!!!
Fór með mömmu og Rebekku systir í mollinn í gær. Reynir Sæberg kom með og lúllaði í vagninum sínum. Fórum fyrst í Kringluna og auðvitað í NEXT. Elska þá búð. Verslaði á Reyni Sæberg. Barnafötin eru alveg æðisleg, þó að mér finnist stelpufötunum alltaf gert hærra undir höfði en strákafötunum. Stelpufötin eru alveg út um allt en það þarf að leita að strákafötunum
Fúlt!!! Svo fórum við í Smáralindina og kíktum í Baby Sam og Adams. Reynir Sæberg svaf allan tímann. Tók hann úr bílstólnum og setti í vagninn við Kringluna og hann svaf. Setti hann svo aftur í bílstólinn og fór í Smáralindina og hann svaf. Setti hann svo aftur í vagninn þar og hann svaf
Vaknaði svo bara þegar ég setti hann aftur í stólinn til að fara aftur heim. Hann er alveg draumur þessi elska.
Mikið var gott að komast aðeins eitthvað út að heiman frá sér. Stundum er ég alveg að klepra hérna í Grindavíkinni, bókstaflega ekkert hægt að gera hérna. Jú, jú ég fer í göngutúra með vagninn en men hvað þetta er einhæft. Það var því gott að komast aðeins í burtu. Mér finnst verst hvað það er mikið vesen að fara í bæinn ef mann langar. Hjörtur er náttúrulega að vinna í bænum og er ekki komin heim fyrr en 17.30 eða 18. Og Sjana er á leikskólanum til 14. Walter er á æfingum og fótboltaskóla. Svo er hann yfirleitt með stæla ef við ætlum í bæinn afþví að honum langar meira að vera að leika við einhvern hérna í bænum, það er ekkert hægt að skilja hann eftir afþví að við þekkjum engan sem við getum beðið að fylgjast með honum. Þannig að það er ekkert hlaupið að því að fara eitthvað. En allt hefur jú sína kosti og galla!!!
Passið ykkur á sólinni, hún brennir:)
25. júní 2008
#
Ég er alveg búin að ákveða það að fá mér svartan eða rauðan VW GOLF GTI í afmælisgjöf þegar ég verð fimmtug
Og þar sem þetta er algjör töffara bíll og Reynir minn Sæberg verður þá 19 ára, þá verð ég bara að vona að hann verði búin að eignast bíl sjálfur svo ég fái eitthvað að keyra minn
19 ár já..... spurning hvort það verði ennþá til GOLF þá....hmmmmm......
23. júní 2008
#
Jæja... komin tími á smá fréttir.
Við vorum á Kaupþingsmótinu um helgina upp á Skaga. Það var alveg rosalega gaman. Veðrið alveg dásamlegt
Ég brann aðeins í andlitinu og er nú með þetta fína gleraugnafar!!
Strákarnir okkar stóðu sig rosalega vel. Walter fór óvænt í A-liðið og fengum við að vita af því á fimmtudagskvöldið. Hann var nú smá tíma að finna sig þar enda orðin vanur að spila með strákunum í B-liðinu. En hann stóð sig vel strákurinn ásamt öllum hinum
. Þeir spiluðu svo úrslitaleik á sunnudeginum á móti Val og urðu að láta í minni pokann þrátt fyrir gríðarlega baráttu. Það var allaveganna ekki hægt að segja að þeir hefðu ekki gert sitt allra besta!!! En mikið var bikarinn nálægt og súrt að tapa á lokasprettinum!! En svona er boltinn...... Við vorum því hress, kát og svakalega þreytt þegar við komum heim í gærkveldi!! Reynir Sæberg stóð sig eins og hetja í sinni annari útilegu og Sjana mín er svo mikill göngugarpur að það hálfa væri nóg. Það sem hún labbaði mikið og án þess að kvarta nokkuð!!! Ótrúleg kjarnakona!!
Annars er allt fínt að frétta, styttist í að við förum vestur á ættarmót en við áætlum að leggja í hann 2. júlí og dóla okkur í rólegheitunum. Úrþví að maður er að fara vestur á annað borð þá verður maður nú að stoppa eitthvað því ekki er nú ódýrt að keyra alla þessa leið. Nú liggur við að maður verði að fara í útilegu bara hérna á bílastæðinu, olían er orðin svo dýr!!!
Ég verð svo að fara að setja inn nýjar myndir.... eða réttara sagt láta Hjört gera það hehe
Ble í bili.....
13. júní 2008
#
og það er ekkert meira um það að segja en að dagurinn var leiðinlegur í alla staði
sumir dagar eru bara þannig, leiðinlegt þegar það hittir á afmælisdaginn. Ég vil þó nota tækifærið og þakka fyrir allar kveðjurnar sem ég fékk
takk fyrir það!!!
Annars er allt ágætt að frétta... allir sprækir.... Sjana er ennþá í leikskólanum og fer í sumarfrí 2. júlí. Walter sést varla þessa daganna, hann er á fótboltaæfingum á morgnana og svo fótboltaskóla eftir hádegi og svo er hann bara úti að leika sér. Reynir Sæberg stækkar og stækkar. Hann var viktaður á miðvikudaginn og var þá orðin 5820 gr og búin að þyngjast um 420 gr á einni viku
. Hann er bara vær og góður og sefur mjög vel á nóttunni eða allt upp í 8 klst, sem er bara lúxus
Jæja, hef ekki meira að segja í bili....
5. júní 2008
#
Við vorum að setja inn myndir frá skírninni á sjómannadaginn:
3. júní 2008
#
Vúhú..... ef það er ekki tilefni til að blogga þetta núna í fyrsta sinn eftir fæðingu!!!
Ég sem sagt féll í siðfræði og lífsleikni í prófunum í byrjun maí
fékk einkunn þegar Reynir var 4 daga gamall og var ekki mjög bjartsýn þann dag. EN með góðum stuðningi frá mínum elsku eiginmanni þá ákvað ég að taka þetta próf aftur 27 maí. Las og las meðan Reynir Sæberg svaf. Hann var vær og góður
Tók prófið og viti menn....... ég náði alveg glæsilega
Fékk 8,5 í einkunn!!! Sem by the way er hæsta einkunnin sem gefin var í þessu námskeiði á þessari önn
Vá, hvað ég er stolt af mér. Ég náði að klára þessa önn..... og bara með flottum einkunnum 7- 8,5- 8,5 og 9
TIL HAMINGJU ÉG